12/12/2022

Sagan okkar

Sagan á bakvið Parket Útlit

Við bræðurnir eru þrír í fjölskyldunni og höfum allir unnið
í parketþjónustu. Eftir margra ára vinnu í faginu vorum við búnir að sérhæfa okkur
í yfirborðs meðhöndlun á parketi. Við höfum alltaf haft gaman af því að vera
saman, svo afhverju ekki að vinna saman líka. Það var alltaf draumurinn að reka
sitt eigið fyrirtæki. Loksins stigum við út fyrir þægindarammann og létum það
verða að veruleika.

"Þetta er einstaklega gefandi og skemmtilegt starf".

Við sjáum ekki eftir því í dag. Þetta einstaklega gefandi
og skemmtilegt starf. Gjöfin er að kynnast skemmtilegu fólki og að taka þátt í
að skapa falleg heimili með viðskiptavinum okkar.  Skemmtilegasti hluti starfsins er að sjá svipinn
á fólki þegar það sér hvað við getum gert og finna þakklætið og ánægjuna að
verki loknu.


Við stofnuðum fyrirtækið árið 2016, og hefur það vaxið
og dafnað með miklum óeigingjörnum stuðning frá fjölskyldum okkar. Það sem við höfum lagt inn
hjá okkar viðskiptavinum er áhersla á góða þjónustu og fyrir tilstilli góðra
umsagna okkar viðskiptarvina hefur fyrirtækið dafnað. Það er ótrúlega
dýrmætt fyrir okkur þegar viðskiptavinir gefa tíma sinn í að skrifa umsögn til
að lýsa þakklæti sínu eða segja frá okkar þjónustu við vini og kunningja sem eru í svipuðum sporum.

Þvílíkir fagmenn, frábær þjónusta á mjög sanngjörnu verði! ” Mímir Nordquist

Gott orðspor er það sem við höfum til að auglýsa
okkur, að okkar mati er það besta auglýsingin. Við leggjum mikin metnað í að
þjónusta okkar viðskiptavini, að þeir finni það að traust skiptir okkur miklu
máli.



Okkar ástríða er í góðri þjónustu, faglegum og traustum vinnubrögðum. Þegar þú pantar
okkur í verkið ertu að fá það sem þú átt að fá fyrir peninginn, örugg
vinnubrögð, góða þjónustu og tímasetningar sem standast, sem er mikilvægt í
svona atvinnugrein. Fólk þarf jafnvel að flytja út á meðan á verki stendur, svo
það er eins gott að standa við það sem maður segir.

Yfirlit yfir þjónustuna okkar

-        
Parket slípun

-        
Parket lögn

-        
Olíuburður

-        
Parket lökkun

-        
Parket litun

-        
Parket viðgerðir

-        
Parket hreinsun

-        
Pallaslípun

-        
Palla hreinsun

-        
Pallviðgerðir

-        
Innréttinga slípun

-        
Slípun á borðplötum

Þetta er alls ekki tæmandi listi svo ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að hikkaðu ekki við að hringja eða senda okkur línu.

Með kærri kveðju,

Gunnar og Stefán

Kíktu á meira fræðsluefni

svipað efni